|
Article in other languages:
|
Bandaríski tundurspillirinn USS Lassen.
Tundurspillir er hraðskreitt og lipurt óbrynvarið herskip sem yfirleitt er ætlað að fylgja stærri skipum í skipaflota og er ætlað að verja þau fyrir árásum minni skipa (upphaflega gegn tundurskeytabátum en síðar einnig kafbátum og flugvélum). Tundurspillirinn er vel vopnum búinn; særými tundurspilla er venjulega um 2000-8000 tonn, lengd 100-150 m. Ganghraði þeirra er um 30 sjómílur á klukkustund. Tundurspillir er minni en beitiskip og stærri en freigáta. Þeir eru einkum notaðir í gagnkafbátahernaði og þá sem fylgdarskip stórra herskipa eða skipalesta. Questions for article: |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.
IHS Europe: Infrared Heating Systems for Home and Business.